Meðferðir ágústmánaðar

posted in: Fegurð og Spa | 0

Nú er gott að byrja að undirbúa húðina fyrir veturinn.

Hvernig væri að kíkja til okkar í notalegheitin og leggjast á mjúkan bekkinn á meðan við dekrum við þig í endurnærandi umhverfi.

Kynntu þér flottu meðferðir mánaðarins hér.

Minnum á bókunarsímann okkar 595-7007
Vinsamlegast virðið bókaðan tíma og afbókið með minnst sólarhringsfyrirvara.

 

Nýtt upphaf fyrir rakaþurra húð (Sweet Cheeks*) með Bright Eyes augnmeðferð. Tími 75 mín.

 

Innifalið í meðferð:

  • Yfirborðshreinsun – hrísgrjónadufti er dúmpað létt yfir húðina til að slétta hana
  • Safarík jarðaber og róandi rabbarbari endurnýja og róa
  • 4ra þrepa augnmeðferð með hindberjum, cedar og eyebright sem slétta, mýkja og stinna
  • Nudd á andilit, bringu og axlir
  • Hyaluronsýra úr Marshmallow extract endurnærir „þyrsta“ húðina
  • Endað á öflugum rakagjöfum og húðin verður frísk og full af raka.

Tilboðsverð: 15.800.-  Listaverð: 19.800.-

*Strawberry Rhubarb Dermafoliant  og Strawberry Rhubarb hyaluronic Serum hafa hlotið verðlaun fyrir að rakajafna „þyrsta“ húð

Dekur litun og plokkun. Tími 60 mín.

 

Innifalið í meðferð:

  • Brúnir mótaðar með vaxi eða plokkun og litaðar með hlýjum brúnum lit
  • Augnahár lituð með djúpblásvörtum lit
  • Slakandi nudd á herðar
  • Stinnandi og mýkjandi Éminence Raspberry Eye Masque* nuddað í kringum augun
  • Endurnærandi Éminence Wild Plum Eye Cream* dúmpað létt á augnsvæði

 

Tilboðsverð: 8.600.-  (Listaverð: 10.900.-)

*Raspberry Eye masque hefur hlotið verðlaun fyrir að gera húðina í kringum augun þéttari og stinnari og minnka dökka bauga. *Wild Plum Eye Cream vann til verðlauna fyrir að stinna og mýkja húðina á augnsvæði.

Í öllum meðferðum okkar notum við Éminence húðsnyrtivörur sem eru lífrænar og vegan.

Á undan/eftir hverri meðferð bjóðum við upp á notalega stund í heitum pottum, sánu og fallegu hvíldarsvæði við kertaljós og glitrandi norðurljós.

Kveðjur, Fegurð og Spa stelpurnar.
Allar tímapantanir eru í síma 595 7007