Meðferðir júnímánaðar

posted in: Fegurð og Spa, Tilboð | 0

Nú er gott að byrja að undirbúa sig fyrir sólina og sumarið sem er handan við hornið. Áður en við drögum fram opnu skóna er komin tími til að gefa fótunum aðeins smá dekur og enda síðan á því að fá litun og plokkun með notalegu ívafi.
Kynntu þér dekurmeðferðir mánaðarins hér.
Minnum á bókunarsímann okkar 595-7007
Vinsamlegast virðið bókaðan tíma og afpantið með minnst sólarhringsfyrirvara.

Fótsnyrting með lökkun og vax að hnjám
Tími 90 mín.
Innifalið í meðferð:
* Vax að hnjám með vaxi fyrir viðkvæma húð
* Volgt Epsomsaltfótabað sem mýkir og endurnærir
* Neglur og naglabönd snyrt
* Hörð húð fjarlægð
* Líkþorn mýkt og þykkar neglur lagfærðar
* Fætur nuddaðir með Éminence Pear & Apple Massage Suofflé*
* Neglur lakkaðar
Tilboðsverð: 13.900.- (Listaverð: 17.400.-)

* Pear & Apple Massage Soufflé hefur fengið verðlaun fyrir að rakajafna húðina og endurvekja ljóma hennar og mýkt.

Dekur litun og plokkun.
Tími 60 mín.
Innifalið í meðferð:
* Brúnir mótaðar með vaxi eða plokkun og litaðar með hlýjum brúnum lit
* Augnahár lituð með djúpblásvörtum lit
* Slakandi nudd á herðar
* Stinnandi og mýkjandi Éminence Raspberry Eye Masque nuddað í kringum augun
* Endurnærandi Éminence Wild Plum Eye Cream* dúmpað létt á augnsvæði
Tilboðsverð: 9.500.- (Listaverð: 11.900.-)

*Raspberry Eye masque hefur hlotið verðlaun fyrir að gera húðina í kringum augun þéttari
og stinnari og minnka dökka bauga.
*Wild Plum Eye Cream vann til verðlauna fyrir að stinna og mýkja húðina á augnsvæði.
Í fótnuddinu og eftir litun augnhára og brúna notum við Éminence húðsnyrtivörur sem eru
lífrænar og vegan.

Á undan/eftir hverri meðferð bjóðum við upp á notalega stund í heitum pottum, sánu og
fallegu hvíldarsvæði við kertaljós og glitrandi norðurljós.

Sumarkveðjur, Fegurð og Spa stelpurnar
Allar tímapantanir eru í síma 595 7007