Meðferðir nóvembermánaðar

posted in: Fegurð og Spa, Tilboð | 0

Við stelpurnar hjá Fegurð og Spa erum orðnar spenntar því það er SVO stutt til jóla!

Dekurpakkarnir okkar fyrir nóvember eru alveg ómótstæðilegir því við viljum láta okkur líða sem
best í jólaundirbúningnum. Fegurð og Spa stelpurnar Heiðdís snyrtifræðimeistari, Lára
tattoofræðingur og Guðrún fótaaðgerðafræðingur ætla, alveg bókstaflega, að dekra við ykkur frá
toppi til táa.

Kynntu þér dekurmeðferðir mánaðarins hér.

Minnum á bókunarsímann okkar 595-7007
Vinsamlegast virðið bókaðan tíma og afpantið með minnst sólarhringsfyrirvara.

 

DERMATUDE – Andlitslyfting án skurðaðgerðar!

Tími 60 mín.

STÖÐVAR ÖLDRUN HÚÐARINNAR
Meta Therapy getur hægt töluvert mikið á öldrun húðarinnar og í raun er hægt að draga verulega
úr sýnileika öldrunar. Meta Therapy örvar náttúrulegt ferli húðarinnar innan frá, þannig að
framleiðsla kollagens og elastíns í húðinni fer aftur af stað og blóðrásin eflist. Jafnframt er
húðinni bætt upp það sem hún hefur farið á mis við, með virkum efnum, eða svokölluðum
„Subjectables“. Snyrtimeðferð sem skilar árangri sem svipar til lýtaaðgerðar án
læknisfræðilegrar aðkomu.

 

VALKOSTUR Á VIÐ ANDLITSLYFTINGU
Dermatude Meta Therapy er 100% náttúruleg fegrunarmeðferð sem endurnýjar og fegrar húðina.
Dermatude Meta Therapy vinnur sérstaklega vel á:

  • Djúpum hrukkum
  • Fínum línum
  • Baugum
  • Slappri húð
  • Bóluörum
  • Litabreytingum
  • Stórum húðholum

Tilboðsverð:
Andlit 18.190.- (Listaverð: 21.400.-)
Andlit og háls 26.222.- (Listaverð: 30.850.-)
Dermatude húðvörur á 15% afslætti

*Til að ná sem bestum árangri er ráðlagt að taka þriggja mánaða andlitsmeðferðina. Komið
er vikulega fyrsta mánuðinn og aðra hverja viku hina tvo mánuðina. Notaðar eru
Dermatude vörur heima á meðan á andlitsmeðferðinni stendur til að hámarka árangurinn.

 

MICROBLADE – Augabrúnatattoo.

Tími 120 mín.

Varanleg förðun/Tattoo
Svokölluð varanleg förðun er orðin afar vinsæl ekki bara hjá fólki sem missir
augabrúnirnar af völdum sjúkdóma heldur líka þeim sem vilja skerpa línur augabrúna
og augnumgjarðar í fegrunarskini.

Nouvau Contour
Réttur litur er það mikilvægasta til að fá sem fallegasta útkomu. Þess vegna bjóðum
við upp á hið heimsþekkta merki í Permanent Make-up, NOUVEAU Contour, sem býr
yfir sérhönnuðu litakerfi og fallegum hágæða litum sem teljast þeir bestu á
markaðinum í dag. Litirnir hafa verið prófaðir hvað litastöðugleika varðar,
öryggi/ofnæmi og útkomu eftir tattoo-veringu.

Tilboðsverð:
44.200.- (Listaverð: 52.000.-)

 

FÓTAAÐGERÐ – Notalegt nudd og faglegar leiðbeiningar.

Tími 60 mín.

Það er notalegt að koma í fótaaðger og eru það fótaaðgerðafræðingar sem meðhöndla hin ýmsu
fótamein. Má þar nefna það algengasta sem eru alskonar naglavandamál eins og þykkar eða
niðurgrónar neglur. Eru neglurnar annað hvort þynntar eða settar á þar til gerðar spangir, allt eftir
því hvað þarf hverju sinni. Hann fjarlægir einnig líkþorn og veitir ráðleggingar varðandi hvernig
aflétta eigi álagi á húð og koma í veg fyrir núning og þrýsing svo að líkþorn myndist ekki. Gott er
að láta fótaaðgerðafræðing líta á fætur sínar til að hægt sé að finna hvort aðgerðar sé þörf
jafnframt því að fá leiðbeiningar um hentugan skóbúnað og fótaumhirðu.

Innifalið í meðferð:

  • Volgt og notalegt fótabað sem mýkir og endurnærir
  • Neglur og naglabönd snyrt
  • Hörð húð fjarlægð
  • Líkþorn mýkt og þykkar neglur lagfærðar
  • Fætur nuddaðir með Éminence Pear & Apple Massage Suofflé*

Tilboðsverð:
8.415.- (Listaverð: 9.900.-)

*Pear & Apple Massage Soufflé hefur fengið verðlaun fyrir að rakajafna húðina og
endurvekja ljóma hennar og mýkt.

 

Á undan/eftir hverri meðferð er innifalin notalega stund í heitum pottum, sánu og fallegu
hvíldarsvæði við kertaljós og glitrandi norðurljós.

Kærar kveðjur, Fegurð og Spa stelpurnar.

Allar tímapantanir eru í síma 595 7007