Klassísk fótsnyrting
Það veitir vellíðan að vera með vel snyrtar og mjúkar fætur. Byrjað er á að mýkja upp fætur í volgu vatni sem epsonsalti hefur verið bætt útí . Síðan eru neglur og naglabönd snyrt og hörð húð fjarlægð. Í lokin er gefið notalegt fótanudd.

Verð
60 mín. 13.900.

70 mín. með lakki 14.900. (Lakk keypt sér)

Létt fótsnyrting
Byrjað er á að mýkja upp fætur í volgu epsonsaltfótabaði. Naglabönd og neglur snyrtar.

Verð
30 mín. 11.900.

Lúxus fótsnyrting með mýkjandi leirmaska
Notaleg meðferð fyrir fætur og fótleggi. Til að taka burtu harða húð og örva blóðflæðið eru fætur nuddaðir upp úr sérstökum fótaskrúbb. Fætur lagðir í volgt fótabað sem epsonsalti hefur verið bætt útí. Síðan eru neglur og naglabönd snyrt og hörð húð fjarlægð. Maski sem mýkir og nærir húðina er borinn á og á meðan er gefið slakandi höfuðnudd. Í lokin eru fætur nuddaðir upp úr nærandi og mýkjandi fótakremi.

Verð
70 mín. 19.900.

80 mín. með lakki 20.900. (Lakk keypt sér)