Fegurð og Spa er fyrsta flokks snyrti- nudd- og Spa meðferðarstofa þar sem færustu fagmenn sjá um að veita gestum góða þjónustu og slökun frá erli dagsins.
Við bjóðum upp á notalega stund í heitum pottum, sánu og fallegu hvíldarsvæði við kertaljós og ljúfa tónlist.
Unnið er með hinar marg verðlaunuðu húðvörur frá Éminence sem eru lífrænt vottaðar snyrti- og Spa vörur, silkimjúkt sambland sem fullkomnar áhrif og vellíðan. Áhersla er lögð á að veita persónulega og góða þjónustu sem fullnægir þörfum þeirra sem gera kröfur þegar kemur að líkamlegri og andlegri vellíðan.