Afpantanir
Við skiljum að ófyrirséðir atburðir geta komið upp hjá öllum. Til þess að við getum komið sem best til móts við viðskiptavini okkar höfum við eftirfarandi reglur í heiðri:
Ef þú þarft að afpanta, vinsamlegast tilkynntu okkur það með 24 klukkustunda fyrirvara.
Með þessu gefur þú öðrum tækifæri á að panta tíma hjá okkur.
Ef að einhverra hluta vegna þú getur ekki afpantað með 24 klukkustunda fyrirvara verður 50% forfallagjald rukkað fyrir tíman þinn.
Mætir ekki
Sá sem gleymir eða meðvitað kemur ekki í tíman sinn telst það sem „skróp“. Verða þeir að borga fyrir þann tíma sem þeir mættu ekki í.
Kemur of seint
Ef komið er of seint í tíman sinn styttist hann sem um það nemur til að það raski ekki tíma þeirra sem á eftir koma. Það fer eftir því hversu seint er komið í tíman hvort snyrtifræðingurinn þinn metur það svo að nægur tími sé eftir til að hefja meðferð. Við gætum þurft að finna annan tíma fyrir þig svo hægt sé að ljúka þeirri meðferð sem pöntuð var.
Óháð því hversu löng meðferð þín er er „full lengd“ hennar ávallt á þína ábyrgð. Af virðingu og tillitssemi við snyrtifræðing þinn og aðra viðskiptavini, vinsamlegast komið á réttum tíma.
Við hlökkum til að sjá þig!
Endurgreiðslur
Ekki er endurgreitt fyrir meðferð sem þegar hefur verið gerð. Við kaup á „pakka“ eða röð meðferða og viðkomandi hættir eftir nokkur skipti telst það eins og að þjónustan hafi verið veitt að fullu. Ef þú vilt hætta meðferðinni eftir nokkur skipti er hægt að færa inneign þína yfir á næstu meðferð eða vöru sem í boði er hjá Fegurð og Spa.
*Við veitum okkur þann rétt að breyta þessum skilmálum án fyrirvara. Ef þú hefur einhverjar spurningar eða þarft aðstoð varðandi greiðslu á meðferðum hjá Fegurð og Spa vinsamlegast snúðu þér til dömunnar í afgreiðslunni.