Andlitsmeðferðir
Í snyrtimeðferðum okkar notum við hinar margverðlaunuðu snyrtivörur frá Eminence. Vörur sem eru fullkomlega hreinar, (organic) án parabena og litarefna. Vegna frábærrar virkni Eminence verður húð þín silkimjúk og ljómandi og upplifun þín alveg einstök.

Í Meta Therapy andlitsmeðferðunum eru notaðar vörur frá Dermatude sem eru 100% náttúrulegar, framleiddar sérstaklega til að nota aðeins í þessari meðferð. Til að ná hámarksárangri býður Dermatude uppá fyrir og eftir húðvörur byggðar á innihaldsefnum úr professional húðvörunum eða svokölluðum „Subjectables“.

Dermatude – Meta Therapy

Fegrunarmeðferð sem er 100% náttúruleg sem endurnýjar og fegrar húð þína á sjáanlegan hátt.
Dermatude Meta Therapy er 100% náttúruleg fegrunarmeðferð sem vinnur gegn öldrun. Hægt er að framkvæma andlitsmeðferðina á öllu andlitinu, hálsinum bringunni eða á ákveðnum svæðum fyrir alhliða húðendurnýjun. Húðin fær betri áferð, fínni húðholur, hún verður þéttari, teygjanlegri og fær yngra yfirbragð. Snyrtimeðferð sem skilar árangri sem svipar til lýtaaðgerðar án lækisfræðilegrar aðkomu. Meta Therapy getur hægt töluvert mikið á öldrun húðarinnar á sjáanlegan hátt. Meta Therapy örvar náttúrulegt ferli húðarinnar innan frá, þannig að framleiðsla kollagens og elastíns í húðinni fer aftur af stað og blóðrásin eflist. Jafnframt er húðinni bætt upp það sem hún hefur farið á mis við með vikum efnum eða svokölluðum „Subjectables“.

Verð
Meta Therapy andlit

50 mín. 27.900.

Meta Therapy andlit og háls

75 mín. 34.900.

Meta Therapy andlit, háls og bringa

90 mín. 43.900.

Herradekur

Afslappandi og mýkjandi
Andlitsmeðferð sem sniðin er að þörfum herramanna á öllum aldri. Leitast er við að endurnýja og mýkja húðina til að draga úr húðertingu sem stafar meðal annars af rakstri. Efni unnin úr Stone Crop plöntunni næra, græða og róa húðina og gefur henni ferskt og heilnæmt útlit. Meðferðin endar svo á slakandi heitsteinanuddi á baki. Til að ná sem bestum árangri er mikilvægt að sleppa rakstri 12 tímum fyrir meðferð.

Verð
75 mín. 20.900.

Clear Skin Vitaskin húðhreinsun

Fyrir blandaða- feita- og acne húð
Ein af mest seldu meðferðum í sögu Eminence er þessi áhrifaríka meðferð sem leysir öll vandamál er feit húð með mikla fílapensla og bólur og flekkótt húð eiga við. Agúrka, Tea Tree og Stone Crop hreinsa á meðan jógúrt fjarlægir varlega dauðar húðfrumur svo að heilbrigðar bakteríur nái að vinna til að koma jafnvægi á húðina. Ótrúlegur árangur en ekki róttækar aðgerðir!

Verð
60 mín. 18.900.

Handsnyrting

Klassísk handsnyrting
Veitir fallega snyrtar hendur og neglur. Byrjað er á að þjala og móta neglur. Naglabönd síðan snyrt og neglur bónþjalaðar. Í lokin er gefið notalegt handanudd upp að olnboga.

Verð
60 mín. 13.900.

Létt handsnyrting
Byrjað er á að þjala og móta neglur, naglabönd síðan snyrt.

Verð
30 mín. 11.900.

Lúxus handsnyrting með paraffinmaska
Lúxusdekur fyrir hendur og handleggi. Til að endurnýja og styrkja húðina eru hendur nuddaðar upp úr mýkjandi kremskrúbb. Neglur þjalaðar og mótaðar. Naglabönd síðan snyrt og neglur bónþjalaðar. Síðan er gefið notalegt og slakandi handanudd upp a olnboga. Hendur síðan lagðar í ylvolgt og mjúkt paraffínvax sem mýkir húð og er einstaklega gott fyrir vöðva og liði og þá sem eru með liðagigt. Á meðan maskinn liggur á er gefið slakandi höfuðnudd.

Verð
70 mín. 19.900.

Fótsnyrting

Klassísk fótsnyrting
Það veitir vellíðan að vera með vel snyrtar og mjúkar fætur. Byrjað er á að mýkja upp fætur í volgu vatni sem epsonsalti hefur verið bætt útí . Síðan eru neglur og naglabönd snyrt og hörð húð fjarlægð. Í lokin er gefið notalegt fótanudd upp að hnjám.

Verð
60 mín. 13.900.

Létt fótsnyrting
Byrjað er á að mýkja upp fætur í volgu epsonsaltfótabaði. Naglabönd og neglur snyrtar.

Verð
30 mín. 11.900.

Lúxus fótsnyrting með mýkjandi leirmaska
Notaleg meðferð fyrir fætur og fótleggi. Til að taka burtu harða húð og örva blóðflæðið eru fætur nuddaðir upp úr sérstökum fótaskrúbb. Fætur lagðir í volgt fótabað sem epsonsalti hefur verið bætt útí. Síðan eru neglur og naglabönd snyrt og hörð húð fjarlægð. Maski sem mýkir og nærir húðina er borinn á og á meðan er gefið slakandi höfuðnudd. Í lokin eru fætur nuddaðir upp úr nærandi og mýkjandi fótakremi.

Verð
70 mín. 19.900.

Augu og brúnir

Verð
Augabrúnir/mótun og augnhár, litun, plokkun/vax

60 mín. 7.900.

Litun, augnhár

30 mín. 6.900.

Litun augabrúnir, mótun plokkun/vax

30 mín. 6.900.

Vaxmeðferðir

ÉPI- LAST
Líkamshár eru mikið vandamál fyrir margar konur og karla. Rakstur, háreyðingarkrem og vax fjarlægja hárin aðeins tímabundið. Épi-Last býður upp á nýjan möguleika á hættulausri varanlegri háreyðingu með líffræðilegri tækni.

ÉPI-LAST hentar fyrir:

  • Allar húðgerðir og húðlit
  • Allar hárgerðir og háralit
  • Alla líkamsparta
  • Virkar líka á dúnhár

Hárlaukurinn mótast við rætur hárslíðursins. Hlutverk hans er að sjá hárrótinni fyrir næringu, en hann er lifandi hluti hársins. Fyrir meðferðina þarf hárið að vera að minnsta kosti 2-3 mm til að tryggja að það sé fjarlægt með rót og hársekkirnir tómir til að Épi-Last ensímið geti borist mjúklega niður og brotið þannig niður þær frumur sem bera ábyrgð á hárvexti. Þegar náttúrulega virka ensímið er komið niður í opna hárpokana með aðstoð lontophorese tækisins, aðskilja ensímin hárfrumurnar sem eru ábyrgar fyrir vexti á nýju hári frá hárrótinni og umbreytir þeim í amínósýrur. Þessar amínósýrur, sem eru náttúruleg efni og finnast í líkamanum, fara síðan á eðlilegan hátt í gegnum eitla og hreinsast út.  Þetta ferli kemur í veg fyrir að hárið vaxi aftur. Épi-Last virkar vel á allar húðgerðir og háraliti og hægt að nota á ljóst, rautt, grátt og jafnvel dúnhár. Þessi háþróaða tækni er hentug varanleg lausn fyrir konur og menn sem eru með óæskilegan hárvöxt. Épi-Last ensímið fer ekki inn í blóðrásina og veldur engum aukaverkunum.

Hvers vegna þarf 10-15 skipti?
Hvert hár fer í gegnum þrjú vaxtarstig, en hársekkirnir eru ekki allir á sama vaxtarstigi á sama tíma. Sem er ástæðan fyrir því að endurtaka þarf meðferðirnar með ákveðnu millibili því að meðhöndla þarf hvern hársekk fyrir sig á réttu vaxtarstigi. Hárið þarf að vera á fyrsta vaxtarstigi til að Épi-Last ensímið geti brotið niður hárrótina og við það næst bestur árangur. Það er mikilvægt að það líði ekki of langur tími á milli meðferða svo hárin séu á réttu vaxtarstigi á hverjum tíma sem þau eru fjarlægð. Nokkrir aðrir þættir geta haft áhrif á fjölda meðferða: Þykkt hársins – áferð húðar á meðferðarsvæði – tími milli meðferða – frumuendurnýjun líkamans.

Venjulega þarf 10-15 meðferðir á 2- 8 vikna millibili til að árangur náist. Eftir hverja meðferð vaxa hárin hægar. Þau verða þynnri og það er auðveldara að fjarlægja þau.  Þú munt sjá sýnilegan árangur strax eftir fjórðu meðferð.

Épi-Last lofar varanlegri háreyðingu ef tíminn á milli meðferða er virtur. Mikilvægt er að viðskiptavinurinn fari eftir þeim ráðleggingum sem honum eru veittar og grípi ekki til annarra háreyðingameðferða á milli.

Klíniskar rannsóknir og húðprófanir sýna greinilega að með því að stýra ensímum niður í tóma hársekkina eyði það hárvaxtafrumunum í hársekkjunum varanlega og fyrirbyggi þannig að nýtt hár vaxi.  

ÉPI-LAST háreyðingarmeðferð (karlar)

Verð
Bak, bringa, axlir

30-60 mín. 19.000. – 45.000.

Vaxmeðferð fjarlægir hárin aðeins tímabundið og losna hárin þá frá rótinni. Ný hár vaxa ekki aftur á því svæði sem vaxað var fyrr en eftir tvær til átta vikur.

Gott að hafa í huga áður en farið er í vaxmeðferð

  • Hárið verður að vera um 2-4 mm að lengd. Flestir þurfa að láta hárin vaxa í um tvær til þrjar vikur eftir að rakað var síðast.
  • Forðist að fara í sólbað eða ljós 24 tímum áður og eftir vaxmeðferð.
  • Forðast að fara í sturtu, sund eða líkamsrækt 24 tímum eftir vaxmeðferð.
  • Forðast að bara krem eða body lotion á andlit eða líkama 24 tímum eftir vaxmeðferð.

Vegna aukinar viðkvæmni í húð þegar notuð eru lyf eins og Retin-A, Accutane eða önnur sýklalyf mælum við ekki með því að koma í andlitsvax vegna hættu á bruna eða flögnun.

Súkkulaðivaxmeðferðir

Verð
Vax á handleggi

30 mín. 7.900.

Vax á bak eða bringu

30 mín. 11.900.

Vax á bringu og bak

30 mín. 16.900.