Hæ hó jibbí jei og jibbíí jei…. það er kominn 17. júní!

posted in: Fegurð og Spa, Tilboð | 0

Nú skellum við í einn skemmtilegan þjóðhátíðarleik og skvísum okkur upp í tilefni dagsins. Áður
en við förum í opnu skóna er komin tími til að gefa fótunum aðeins smá dekur eða fá litun og
plokkun með notalegu ívafi.
Þú veist hvað á að gera; Líka við síðuna okkar, deila leiknum og segja hvora meðferðina þú
vilt vinna.

Minnum á bókunarsímann okkar 595-7007
Vinsamlegast virðið bókaðan tíma og afpantið með minnst sólarhringsfyrirvara.

Fótsnyrting með lökkun og vax að hnjám
Tími 90 mín.
Innifalið í meðferð:
* Vax að hnjám með vaxi fyrir viðkvæma húð
* Volgt Epsomsaltfótabað sem mýkir og endurnærir
* Neglur og naglabönd snyrt
* Hörð húð fjarlægð
* Líkþorn mýkt og þykkar neglur lagfærðar
* Fætur nuddaðir með Éminence Pear & Apple Massage Suofflé*
* Neglur lakkaðar
Tilboðsverð: 13.900.- (Listaverð: 17.400.-)
Pear & Apple Massage Soufflé hefur fengið verðlaun fyrir að rakajafna húðina og endurvekja ljóma hennar og mýkt.

Dekur litun og plokkun
Tími 60 mín.
Innifalið í meðferð:
* Brúnir mótaðar með vaxi eða plokkun og litaðar með hlýjum brúnum lit
* Augnahár lituð með djúpblásvörtum lit
* Slakandi nudd á herðar
* Stinnandi og mýkjandi Éminence Raspberry Eye Masque nuddað í kringum augun
* Endurnærandi Éminence Wild Plum Eye Cream* dúmpað létt á augnsvæði
Tilboðsverð: 9.500.- (Listaverð: 11.900.-)
Raspberry Eye masque hefur hlotið verðlaun fyrir að gera húðina í kringum augun þéttari og stinnari og minnka dökka bauga.
Wild Plum Eye Cream vann til verðlauna fyrir að stinna og mýkja húðina á augnsvæði.
Í fótnuddinu og eftir litun augnhára og brúna notum við Éminence húðsnyrtivörur sem eru lífrænar og vegan.

Á undan/eftir hverri meðferð bjóðum við upp á notalega stund í heitum pottum, sánu og fallegu hvíldarsvæði við kertaljós og glitrandi norðurljós.

Sumarkveðjur, Fegurð og Spa stelpurnar

Allar tímapantanir eru í síma 595 7007