Tilboð Mánaðarins – September 2019

posted in: Tilboð | 0

Það er ekki ráð nema í tíma sé tekið og þess vegna ætlum við stelpurnar hjá Fegurð og Spa að nota haustið og veturinn til að hugsa vel um ykkur. Gera húðina ljómandi og áferðafallega og forma augabrúnirnar fagurlega.
Dekurpakkarnir okkar eru því alveg ómótstæðilegir vegna þess að við viljum láta okkur líða sem best.
Heiðdís snyrtifræðimeistari og Lára tattoofræðingur ætla, alveg bókstaflega, að dekra við ykkur.
Minnum á bókunarsímann okkar 595-7007
Vinsamlegast virðið bókaðan tíma og afpantið með minnst sólarhringsfyrirvara.

Dermatude – Fyrir og eftir

Dermatude – Andlitslyfting án skurðaðgerðar
Tími 60 mín
Stöðvar öldrun húðarinnar
Meta Therapy getur hægt töluvert mikið á öldrun húðarinnar og í raun er hægt að draga verulega úr sýnileika öldrunar. Meta Therapy örvar náttúrulegt ferli húðarinnar innan frá, þannig að framleiðsla kollagens og elastíns í húðinni fer aftur af stað og blóðrásin eflist.
Jafnframt er húðinni bætt upp það sem hún hefur farið á mis við, með virkum efnum, eða svokölluðum „Subjectables“. Snyrtimeðferð sem skilar árangri sem svipar til lýtaaðgerðar án læknisfræðilegrar aðkomu.
Valkostur á við andlitslyftingu – Dermatude Meta Therapy er 100% náttúruleg fegrunarmeðferð sem endurnýjar og fegrar húðina.
Dermatude Meta Therapy vinnur sérstaklega vel á:
– Djúpum hrukkum
– Fínum línum
– Baugum
– Slappri húð
– Bóluörum
– Litabreytingum
– Stórum húðholum
Tilboðsverð:
– Andlit 17.120.- (Listaverð: 21.400.-)
– Andlit og háls 24.680.- (Listaverð: 30.850.-)
– Dermatude húðvörur á 15% afslætti

*Til að ná sem bestum árangri er ráðlagt að taka þriggja mánaða andlitsmeðferðina.
Komið er þá vikulega fyrsta mánuðinn og aðra hverja viku hina tvo mánuðina. Notaðar eru
Dermatude vörur heima á meðan á andlitsmeðferðinni stendur til að hámarka
árangurinn.

Microblade – Augabrúnatattoo
Tími 120 mín
Varanleg förðun/Tattoo
Svokölluð varanleg förðun er orðin afar vinsæl ekki bara hjá fólki sem missir augabrúnirnar af völdum sjúkdóma heldur líka þeim sem vilja skerpa línur augabrúna og augnumgjarðar í fegrunarskini.
Nouvau Contour – Réttur litur er það mikilvægasta til að fá sem fallegasta útkomu.
Þess vegna bjóðum við upp á hið heimsþekkta merki í Permanent Make-up, Nouveau Contour, sem býr yfir sérhönnuðu litakerfi og fallegum hágæða litum sem teljast þeir bestu á markaðinum í dag. Litirnir hafa verið prófaðir hvað litastöðugleika varðar, öryggi/ofnæmi og útkomu eftir tattooveringu.
Tilboðsverð: 41.600.- (Listaverð: 52.000.-)

Fríska upp á eldra Microblade tattoo
Tími 120 mín
Þær dömur sem hafa komið í Microblade til okkar eru velkomnar í 1 haustdekurtíma.
Tilboðsverð: 27.000.- (Listaverð: 34.000.-)

Á undan/eftir hverri meðferð er innifalin notalega stund í heitum pottum, sánu og
fallegu hvíldarsvæði við glitrandi norðurljós.

Kærar kveðjur, Fegurð og Spa stelpurnar.
Allar tímapantanir eru í síma 595 7007