Meðferðir ágústmánaðar 2019

posted in: Fegurð og Spa, Tilboð | 0

Nú er gott að byrja að undirbúa húðina fyrir veturinn.
Hvernig væri að kíkja til okkar í notalegheitin og leggjast á mjúkan bekkinn á meðan við dekrum við þig í endurnærandi umhverfi.
Kynntu þér flottu meðferðir mánaðarins hér.
Minnum á bókunarsímann okkar 595-7007
Vinsamlegast virðið bókaðan tíma og afbókið með minnst sólarhringsfyrirvara.

Nýtt upphaf fyrir rakaþurra húð (Sweet Cheeks*) með Bright Eyes augnmaskameðferð
Tími 75 mín.
Innifalið í meðferð:
* Yfirborðshreinsun – hrísgrjónadufti er dúmpað létt yfir húðina til að slétta hana
* Safarík jarðaber og róandi rabbarbari endurnýja og róa
* 4ra þrepa augnmeðferð með hindberjum, cedar og eyebright sem slétta, mýkja og stinna
* Nudd á andilit, bringu og axlir
* Hyaluronsýra úr Marshmallow extract endurnærir „þyrsta“ húðina
* Endað á öflugum rakagjöfum og húðin verður frísk og full af raka.
Tilboðsverð: 15.800.- (Listaverð: 19.800.-)
*Strawberry Rhubarb Dermafoliant og Strawberry Rhubarb hyaluronic Serum hafa hlotið verðlaun fyrir að rakajafna „þyrsta“ húð

Dekur litun og plokkun
Tími 60 mín
Innifalið í meðferð:
* Brúnir mótaðar með vaxi eða plokkun og litaðar með hlýjum brúnum lit
* Augnahár lituð með djúpblásvörtum lit
* Slakandi nudd á herðar
* Stinnandi og mýkjandi Éminence Raspberry Eye Masque* nuddað í kringum augun
* Endurnærandi Éminence Wild Plum Eye Cream* dúmpað létt á augnsvæði
Tilboðsverð: 9.500.- (Listaverð: 11.900.-)
*Raspberry Eye masque hefur hlotið verðlaun fyrir að gera húðina í kringum augun þéttari
og stinnari og minnka dökka bauga. *Wild Plum Eye Cream vann til verðlauna fyrir að
stinna og mýkja húðina á augnsvæði.

Í öllum meðferðum okkar notum við Éminence húðsnyrtivörur sem eru lífrænar og vegan.
Á undan/eftir hverri meðferð bjóðum við upp á notalega stund í heitum pottum, sánu og
fallegu hvíldarsvæði við glitrandi norðurljós.

Kveðjur, Fegurð og Spa stelpurnar.
Allar tímapantanir eru í síma 595 7007