Nú skellum við í einn skemmtilegan þjóðhátíðarleik og skvísum okkur upp í tilefni dagsins.
Þú veist hvað á að gera; Like, deila og segja hvora meðferðina þú vilt vinna.
Dregið verður föstudaginn 15. Júní.
Áður en við förum í opnu skóna er komin tími til að gefa fótunum aðeins smá dekur eða fá litun og plokkun með notalegu ívafi.
Kynntu þér dekurmeðferðir mánaðarins hér.
Minnum á bókunarsímann okkar 595-7007
Vinsamlegast virðið bókaðan tíma og afpantið með minnst sólarhringsfyrirvara.
Fótsnyrting með lökkun og vax að hnjám. Tími 90 mín.
Innifalið í meðferð:
- Vax að hnjám með vaxi fyrir viðkvæma húð
- Volgt Epsomsaltfótabað sem mýkir og endurnærir
- Neglur og naglabönd snyrt
- Hörð húð fjarlægð
- Líkþorn mýkt og þykkar neglur lagfærðar
- Fætur nuddaðir með Éminence Pear & Apple Massage Suofflé*
- Neglur lakkaðar
Tilboðsverð: 13.500.- (Listaverð: 16.800.-)
*Pear & Apple Massage Soufflé hefur fengið verðlaun fyrir að rakajafna húðina og endurvekja ljóma hennar og mýkt.
Dekur litun og plokkun. Tími 60 mín.
Innifalið í meðferð:
- Brúnir mótaðar með vaxi eða plokkun og litaðar með hlýjum brúnum lit
- Augnahár lituð með djúpblásvörtum lit
- Slakandi nudd á herðar
- Stinnandi og mýkjandi Éminence Raspberry Eye Masque* nuddað í kringum augun
- Endurnærandi Éminence Wild Plum Eye Cream* dúmpað létt á augnsvæði
Tilboðsverð: 8.600.- (Listaverð: 10.900.-)
*Raspberry Eye masque hefur hlotið verðlaun fyrir að gera húðina í kringum augun þéttari og stinnari og minnka dökka bauga.
*Wild Plum Eye Cream vann til verðlauna fyrir að stinna og mýkja húðina á augnsvæði.
Í fótnuddinu og eftir litun augnhára og brúna notum við Éminence húðsnyrtivörur sem eru
lífrænar og vegan.
Á undan/eftir hverri meðferð bjóðum við upp á notalega stund í heitum pottum, sánu og fallegu hvíldarsvæði við kertaljós og glitrandi norðurljós.
Sumarkveðjur, Fegurð og Spa stelpurnar
Allar tímapantanir eru í síma595 7007
You must be logged in to post a comment.